Klór - Ilmkerti
Þegar ekki mátti fara í sund, þegar ekki var hægt að ferðast til útlanda og synda í 50% klórbætta hótelsundlaugarvatninu, þegar ekki mátti fara í heitu pottana og eyða heilu sólahringunum á sundæfingu á viku... þá hefði verði ansi ljúft að hafa klórkerti til að endurvekja góðu minningarnar.
- eða nenntir þú ekki að þrífa heima hjá þér? Léttur sótthreinsi ilmur sem blekkir heimilisfólk og gesti.
4 oz kerti, tæp 120 grömm í áldós með loki.
Kemur í snyrtilegu gjafaboxi, 5 cm x 5 cm
------------------------------
The Stinky Candle Company er lítið startup fyrirtæki í úthverfi Chicago í Bandaríkjunum. Kertaframleiðslan byrjaði upprunalega sem áhugamál en varð að litlu fyrirtæki sem hefur það að leiðarljósi að geta dreift og fagnað náttúrulegum ilmgjöfum í daglegu umhverfi okkar.
Úrval ilmkerta á almennum markaði er frekar einsleitt, en það eru ekki lyktir sem við getum fundið dagsdaglega í okkar nánasta umhverfi og vekja fram huglægar tengingar við manneskju, stað eða tíma.
Takmark The Stinky Candle company er að gera einmitt það, vekja tengingar við atburði, skapa skemmtilegar... eða allavega öðruvísi minningar sem jafnvel kalla fram bros!
Þar sem þeirra mottó er nánast það sama og okkar hjá Gormi - að vera öðruvísi, þá lá beinast við að bjóða upp á vörur þeirra hér á norðurhjara veraldar í von um að geta kallað fram bros hjá einhverjum og jafnvel skapað góðar minningar.